Róm 2009

Við hjónin brugðum okkur í 5 daga skemmtiferð til Rómar og skoðuðum ýmsa sögufræga staði. Það var frekar svalt í veðri en við þrömmuðum eins og ekta túristar um allt með kort í hendi og myndavél um hálsinn. Ferðuðumst með Icelandexpress og Ryanair eins og pöplinum sæmir. Hótelið var fínt en Evran ekki. Maturinn ágætur (já, ekkert meira en það ef frá er talin parma skinkan og mozzarella osturinn sem við borðuðum í ómældu magni). Hér koma nokkrar myndir. (Hrund á Péturstorginu / Hrund á Spænsku tröppunum / Hrund við Trevi gosbrunninn)

Fórum í túrista-rútuferð um borgina á degi 1. Fórum út hjá Péturskirkjunni og skoðuðum hana nokkuð vel og vandlega.
Hreint ótrúlegt mannvirki.

 
         
  Hrund á Péturstorginu. Benni lét ekki sjá sig, hann var upptekinn í Afríku við að árétta að smokkurinn væri ekki besta vörnin við HIV.    
         

 

 

Inni í Péturskirkjunni. Til hægri sést glitta í sistínsku kapellu Michaelangelos. Skil nú ekki hvað all the fuzz is about....(eins og Kata mundi orða það: djóóók)

 

Þetta er á Piazza Navona, mjög skemmtilegu torgi iðandi í mannlífi. Það er svo gaman að
ganga um þröngar götur og finna svo allt í einu tilkomumikil torg og mannvirki.

 

 

 

 

Pantheon

Pantheon var byggt stuttu fyrir krist. Þakið var byggt á þann hátt að steypu var hellt yfir trégrind. Sniðugir Rómverjarnir!

Þessi gosbrunnur er fyrir utan Pantheon. Gosbrunnar eru útum allt!

 

 

Þessi mikilfenglega höll (og minnisvarði um fyrsta konung Ítala) er við endann á Via del Corso sem er verslunargata. Mjög merkilegt að vera staddur á þeirri götu og sjá þessa huge byggingu við enda götunnar.

Útsýni frá höllinni. Þarna sést í Colosseum.

 

Þarna sést m.a. í hallarrústir Sesars (er það ekki annars, Gísli?). Mér til happs er Gísli vel að sér í mannskynssögunni en ég velti stundum fyrir mér hvort hún hafi nokkuð verið kennd í Holtaskóla (eða Myllubakkaskóla eða FS) - ég hlýt allavega að hafa verið veik þann daginn!

 

 

Fontana di Trevi - einn af mínum uppáhaldsstöðum. Til að komast að þessum svaka gosbrunni
labbar maður þröngar götur og svo allt í einu blasir við manni þessi ótrúlega sýn..

 

 

Lesið um Róm í Róm

 

 

Spænsku tröppurnar, ekki slæmt útsýni þaðan

Þarna sést glitta í Dior verslun - þetta er high fashion búðahverfið.
Skemmst er frá því að segja að ég hélt mig langt frá því.

Hrund í spænsku tröppunum

Spænsku tröppurnar by night - Hafnargata þeirra Rómverja (hahaha)

 

 

 

Smá retail therapy

 

 

Í Trastevere - SoHo þeirra Rómverja, hér bjuggu hinir ekta Rómverjar og eiga (áttu?) þeir sína eigin mállýsku og hér er víst
hægt að fá alvöru (?) ítalskan mat. Hér búa bóhemarnir, the struggling artists og allir hinir wannabe-arnir. Hipp og kúl.
Og Gísli skoðar kortið.

 

Þarnar er Santa Maria kirkjan, ein sú elsta í Róm. Hún var mjög falleg. Lætur lítið yfir sér að utan.

 

Ég veit nú ekki alveg hver þetta er (þoli ekki þegar fólk kynnir sig ekki!) en hann á kannski að
geta svarað bænum manns? Bréfið frá mér var einhvern veginn á þessa leið: "lægri vexti, lægri vexti, lægri vexti"

 

Ennþá í Trastevere. Töluðum um það að hér býr fólk í
mörg hundruð ára gömlum húsum en þegar Íslendingar
kaupa sér íbúð þá má hún helst ekki vera eldri en 5 ára...

 

 

This is life! Uppí rúmi með reyfara! You go get'em, Dr. Scarpetta!

 

 

"Hvað keyptirðu handa okkur, mamma?"

 

 

Á heimleið: vorum 8 tíma á Stansted, röltum okkur yfir á SAS hótelið og sátum þar.

Enginn smá vínskápur

Einn lítinn Mojito takk

 

Ciao!

Gísli og Hrund