Norskir skógarkettir - 2 fresskettlingar fæddir 27. ágúst 2009

Móðir ÍS*Didriksen Nótt (ÍS KKÍ LO 03362)
Faðir Týr frá Gauksstöðum ÍS* (ÍS KKÍ LO 03517)

Kettlingarnir (kallaðir Skuggi og Brandur) eru nú í heimilisleit. Þeir eru ólíkir bæði í útliti og karakter, Skuggi líkist móður sinni og Brandur föður sínum. Brandur er kelirófa en Skuggi sjálfstæður og stríðinn. Þeir eru örmerktir, bólusettir og ormahreinsaðir og tilbúnir til afhendingar um miðjan nóvember. Ættbækur eru í bígerð.

Áhugasamir geta sent póst til hrundholm@simnet.is